Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Reikniskekkja

Það er ekki 770% fjölgun í röðum Zúista, heldur 771 földun félaga (770,75 nákvæmlega). Í prósentum talið er það 77100% aukning (sjötíu og sjöþúsund og eitthundrað prósent). Það er mun meira impressive en talan í fréttinni.

En betur má ef duga skal með ríkiskirkjuna. Það væri óskandi að hún færi undir 50% á næstu 10 árum, enda á hún ekkert erindi í uppbyggilegu nútímasamfélagi.


mbl.is Þjóðkirkjufólki fækkar hraðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurgreiðsla sóknargjalda

Það er gott mál að verið sé að taka þessi tengsl til endurskoðunar. Best væri ef fólk gæti t.d. hakað við trúfélag á skattaskýrslum eða þá einnig kosið að standa utan trúfélaga og sparað sér þessar krónur. En einhvernveginn hef ég ekki trú á að það verði raunin. Þegar valdaflokkur sem vildi miða alla lagasetningar út frá kristnum gildum (sem er ekki eitthvað sem nútíma þjóðfélag vill kenna sig við) að þá er ég hræddur um að þetta verði eingöngu til að auka fjáraustrið í ríkiskirkjuna sem einungis um 35% þjóðarinnar telur sig eiga samleið með.
mbl.is Fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju endurskoðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúarskóli

Það sorglega er að Háskóli Íslands mun aldrei komast í allra fremstu röð á meðan guðfræði er kennd við skólann. Guðfræði hefur ekkert að gera með að vera háskólanám og á að vera á hendi hverrar stofnunar fyrir sig sem námið snýst um þ.e. hjá ríkiskirkjunni í okkar tilfelli. Guðfræði, í eðli sýnu, getur ekki fylgt gagnrýnni aðferðarfræði sem háskólanám snýst um enda væru trúarbrögð útdauð ef fólk almennt gæti beitt gagnrýnni hugsun á þau. Guðfræðin í HÍ er heldur ekki guðafræði og snýst nánast eingöngu um ríkisguðinn okkar. Önnur trúarbrögð fá rétt kynningu í samanburði við ríkistrúnna. Þetta mun ávalt draga HÍ niður, bæði hvað varðar gæði og virðingu.
mbl.is Háskóli Íslands meðal 300 bestu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erum við í ESB?

En við erum ekki í Evrópusambandinu. Hvert er þá vandamálið? Tökum við nýjar reglur hjá ESB samdægurs upp hjá okkur? Afhverju eru sumar reglur teknar upp hérna en aðrar ekki, og hver ákveður?
mbl.is Enginn nýr Land Cruiser 200 seldur í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða...!!

Kannski er ég svona þröngsýnn, en ég skil ekki hversvegna verið er að eyða síðuplássi og orku blaðamanns í að fjalla um svona bull. Þetta fer í sama flokk og völvan, miðlar, spákellingar o.þ.h. peningahyski. Ég vona að þjóðin opni augun og sturti svona hegðun niður með hinni séríslensku útrásaraðferðarfræði. Það mundi gera öllum gott.

Það er hinsvegar magnað hvað trúfélög geta verið umburðarlynd í garð hvors annars, en þegar kemur að trúleysingjum að þá er eins og djöfullinn sjálfur sé kominn á kreik. Það er kannski það sem sameinar trúfélögin sem stuðlar að samvinnunni, þ.e. blekkingaleikur á kostnað borgaranna. Peningar og völd eru það sem knýja t.d. Ríkiskirkjuna áfram. Óheiðarleiki presta hennar í umræðunni mundi senda flesta venjulega borgara beint til helvítis, en þeir eru kannski á magnafslætti hjá hinu ímyndaða peningasoltna almætti. Hvað í andsk...... þýðir það svo að biðja fyrir einingu á fjöllum og sjó? Er ekki til eitthvað skilvirkara/betra sem hægt er að óska sér til sjávar og sveita? Það er einhver helgislepjulykt af þessu.


mbl.is Bað fyrir einingu á fjöllum og í sjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhugavert

Mér þykja svona pælingar skemmtilegar. Ég er sammála honum um að það er örugglega líf á öðrum plánetum,  en er reyndar ekki jafn sannfærður um að geimverur hafi heimsótt okkur Jarðlinga. Til að vitsmunaverur geti þróast það lengi að ferðir milli sólkerfa verði möguleiki, hljóta þessar verur að vera friðsamar. Að öðrum kosti væru þær búnar að útrýma sjálfum sér. Við sjáum það best með mannkynið. Því meira sem við tæknivæðumst, því svakalegri verða stríðin. Nú er svo komið að verði önnur heimsstyrjöld eru vel á annan tug ríkja sem hafa getu til að þurrka nánast allt vitsmunalíf af plánetunni. Fyrir vitsmunaverur þarna úti sem eru lengra komnar en við (ef einhverjar eru) að þá hljóta þær að hafa staðið af sér þessa ógn frá sjálfum sér sem við stöndum frammi fyrir núna, og þar af leiðandi gef ég mér það að þær séu friðsamar.
mbl.is Geimverur geta verið varhugaverðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég sé eftir að hafa fermst.

Þetta var auðvitað alveg vitað mál, og glórulaust að innlima ólögráða börn í sértrúarsöfnuði. Það á að sjálfsögðu líka að banna skráningu barna í hverskyns trúarsöfnuði fyrir 18 ára aldur, banna kirjunni að stunda trúboð í leik- og grunnskólum og hætta að innheimta félagsgjöld fyrir allt draslið í gegnum skatta. Valdabáknið kirkjan er mikil tímaskekkja í nútíma samfélögum enda er hún á undanhaldi víðast hvar, sem betur fer. Í dag er vel innan við helmingur þjóðarinnar sem skilgreinir sig sem trúaða og því hljótum við að aðlaga okkur að því með því t.d. að hætta að dæla 5 milljörðum á ári í miðaldra kalla í grímubúningum (prestar) og þeirra gullslegnu hallir sem ganga svo þvert á boðskap trúarritsins að leitun er að annarri eins hræsni í mannlegum samfélögum.

Aðskilnað ríkis og kirkju STRAX!!


mbl.is Sjá eftir fermingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ánægður með Bertone

Ég er bara hæstánægður með þessi ummæli Bertones, í þeim skilningi þó að kaþólska kirkjan er að grafa eigin gröf og taka ómakið af okkur hinum sem lengi hafa fordæmt hana. Kaþólska kirkjan og kirkjur yfir höfuð eru algjör tímaskekkja í eins upplýstu þjóðfélagi og við teljum okkur búa í. Tilgangur kirkjunna er eingöngu að viðhalda sjálfteknum völdum, halda fólki í fáfræði og passa að peningastreymið stoppi ekki. Andlega hlið kirkjunnar er svo eingöngu tól sem notað er til að lokka sjúka og heimska með sér í lið og þarmeð viðhalda strúktúrnum.

Það er mín von að fleiri kardínálar taki til máls og tjái sig um barnaníðið því þeirra bronsaldarviðhorf opna augu fólks fyrir fávitaskapnum sem viðgengst í Páfagarði. Því meira sem þeir tjá sig því dýpri verður gröfin og því betri verður heimurinn.


mbl.is Ummæli kardínála vekja reiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Banna þessa stofnun

Nú var verið að banna súludans vegna ótta við mansal. Er ekki kominn tími til að banna kirkjuna þar sem rökstuddur grunur er um misnotkun og nauðgun barna? Geta menn endalaust skýlt sig á bakvið þessa stofnun? Menn eru bara færðir til í starfi og í versta falli flytja níðingarnir til Páfagarðs þar sem þeir fá hæli. Kaþólska kirkjan reynir að þagga allt niður í stað þess að vera í farabroddi þess að upplýsa um þessi mál. Svo tala þeir bara um erfiða tíma hjá kirkjunni og eru nokk sama um fórnarlömbin. Þvílíkt hyski. Að sjálfsögðu á að leysa þennan glæpahring upp eins og gert er við aðra glæpahringi. Þeim á hvergi að vera vært.


mbl.is Ofbeldi í dönskum kirkjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handtaka manninn

Afhverju er þessi maður ekki handtekinn og dæmdur? Hann vælir um erfiða tíma fyrir kirkjuna en er sjálfsagt skítsama um þau hundruð ef ekki þúsundir barna sem hafa verið misnotuð í skjóli þessa sértrúarsafnaðar. Hann var í forsvari nefndar sem sá um að þagga þessi mál niður og er því samsekur um misnotkun og nauðgun á börnum. Nú hefur þessi stofnun verið að skíta upp á bak í ca 2000 ár, en samt sem áður virðast menn ennþá ætla að komast upp með allt mögulegt í skjóli hennar. Þetta er alveg ótrúlegt.
mbl.is Páfi hitti norræna biskupa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Reputo

Höfundur

Reputo
Reputo
Fjölskyldufaðir með báða fætur á jörðinni. Hef óbeit á hverskyns guðatrú og er fréttafíkill
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Atheist

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband