Afhverju

Afhverju skapaði guð þá svínið? Getur verið að fólk sé að lepja upp gömul ævintýri sem enga enga stoð í raunveruleikanum?
mbl.is Eina svínið laust úr sóttkví
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kommentarinn

Meirihluti mannkyns ver mestöllum tíma sínum í að lepja upp gömul ævintýri sem meika ekkert sens... Humans are idiots...

Kommentarinn, 5.7.2009 kl. 13:57

2 identicon

Sæll,

Mikið af þessum gömlu reglum eiga sér einfaldar ástæður og oftast eiga þær rætur að rekja til heilsufars.  Svínakjöt getur skemmst mjög hratt og geymist illa í þeim mikla hita sem er í miðausturlöndum.  Það er líka viðkvæmara fyrir ýmsum sýkingum heldur en annað kjöt og getur því valdið veikindum. 

Kveðja

Arnór Baldvinsson (IP-tala skráð) 5.7.2009 kl. 15:57

3 Smámynd: Reputo

Þökk fyrir innleggin

Svín eru alin upp við töluvert aðrar aðstæður í dag og því eru sýkingar og þessháttar nánast úr sögunni. Einnig held ég að fólk í Mið Austurlöndum sé lítið að spá í þessu. Þar er það bara orð hins ímyndaða vinar sem blívar sama hvað tautar og raular.

Reputo, 5.7.2009 kl. 18:48

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þá má ekki gleyma því að Múhameð var með þessari lífsreglu að koma í veg fyrir veikindi. Svínakjöt er þeim ósköpum búið að vera mjög feitt sem þránanr hratt í hitanum og skemmist eins og Arnór bendir réttilega á.

Hvað skyldi segja í Kóraninum ef hann hefði verið ritaður eftir að núverandi kælitækni og ískapar voru komnir til sögunnar.

Öðru máli gegnir um bann íslima við notkun áfengis: sá sem drekkur sig fullan áður en hann heldur út í eyðimörkina er dauðans matur.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 5.7.2009 kl. 20:18

5 Smámynd: Rebekka

Ég veit ekki,  er minni hiti í Mexíkó en í Mið-Austurlöndum?  Kaldara í Kína?

Auðvitað er þetta bann löngu úrelt, en það virðist vera erfitt að kenna gömlum hundi að sitja... 

Rebekka, 5.7.2009 kl. 20:28

6 identicon

Þetta á ekki bara við um svínakjöt og Islam, Gyðingar eru með sitt Kosher, og skelfiskur (hreistur laus fiskur) er tabu, skelfisksofnæmi veldur því að skelfiskur var flokkaður sem óhreinn í gamladaga.  Kosher úttekt var upphaflega heilbrigðisúttekt.

Bjorn Jonasson (IP-tala skráð) 6.7.2009 kl. 09:46

7 identicon

Það þótti nú ekki merkilegt fólk sem borðaði hrossakjöt á íslandi þar til nýlega, að ég tali nú ekki um; kanínur, lóur, hrossagauk og annað lostæti.

Hörður Bragason (IP-tala skráð) 7.7.2009 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Reputo

Höfundur

Reputo
Reputo
Fjölskyldufaðir með báða fætur á jörðinni. Hef óbeit á hverskyns guðatrú og er fréttafíkill
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Atheist

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband