11.11.2011 | 15:39
Laffer kúrvan
Laffer kúrvan er fyrirbæri sem Steinhanna, Jógrímur og margir verslunareigendur þekkja ekki til. Með henni er sýnt fram á hvernig tekjur geta minnkað með of mikilli skatt- eða álagningu.
Hugmyndin er sú að með 0% sköttum eru engar skatttekjur, en það sama má segja ef það væri 100% skattur. Þá sæji fólk ekki ástæðu til að vera vinna myrkranna á milli án þess að bera neitt úr bítum. Einhverssaðar þarna á milli hámarkast innkoma af skatttekjunum. Ef þú ferð yfir toppinn minnka tekjurnar.

Hérna sjáum við að þegar ákveðnu óskilgreindu hámarki er náð fara tekjurnar að minnka aftur. Þetta er nákvæmlega það sem gerst hefur varðandi áfengi, bensín, skatta og ýmislegt fleira. Við sjáum töluverðan samdrátt í sölu við hverja hækkun. Þetta mega verslunareigendur, margir hverjir, taka til sín líka.
Það versta er að hugsjónalausu atvinnupólitíkusunum okkar er nákvæmlega sama og það síðasta sem þau gera er að lækka álagninguna því þá eru þau að viðurkenna að þeim skjátlaðist. Það er eitthvað sem kennt er í pólitík 101 að viðurkenna aldrei mistök, eða allavega kenna einhverjum öðrum um. Við munum því búa við þetta áfram, og sennilega munu þau auka álögurnar enn meira til að sporna við minnkandi tekjum. Þetta er sorglegt að horfa upp á.
|
Ríkið hirðir 90% af Tindavodka |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
4.2.2011 | 07:40
Erum við í ESB?
|
Enginn nýr Land Cruiser 200 seldur í ár |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
19.1.2011 | 01:55
Hvaða...!!
Kannski er ég svona þröngsýnn, en ég skil ekki hversvegna verið er að eyða síðuplássi og orku blaðamanns í að fjalla um svona bull. Þetta fer í sama flokk og völvan, miðlar, spákellingar o.þ.h. peningahyski. Ég vona að þjóðin opni augun og sturti svona hegðun niður með hinni séríslensku útrásaraðferðarfræði. Það mundi gera öllum gott.
Það er hinsvegar magnað hvað trúfélög geta verið umburðarlynd í garð hvors annars, en þegar kemur að trúleysingjum að þá er eins og djöfullinn sjálfur sé kominn á kreik. Það er kannski það sem sameinar trúfélögin sem stuðlar að samvinnunni, þ.e. blekkingaleikur á kostnað borgaranna. Peningar og völd eru það sem knýja t.d. Ríkiskirkjuna áfram. Óheiðarleiki presta hennar í umræðunni mundi senda flesta venjulega borgara beint til helvítis, en þeir eru kannski á magnafslætti hjá hinu ímyndaða peningasoltna almætti. Hvað í andsk...... þýðir það svo að biðja fyrir einingu á fjöllum og sjó? Er ekki til eitthvað skilvirkara/betra sem hægt er að óska sér til sjávar og sveita? Það er einhver helgislepjulykt af þessu.
|
Bað fyrir einingu á fjöllum og í sjó |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
21.6.2010 | 07:17
Þar af greiddi ég 10 þús.
Ég fékk mynd af mér senda, við ábyrgðarlausan ofsaakstur, seint um kvöld á virkum degi með skygni út að sjóndeildarhring, þar sem ég þeyttist með aldraða móður mína á 97 km/h á milli Hveragerðis og Selfoss. Þegar ég svo gékkst við þessum glæp hjá sýslumanninum á Selfossi sagði lögregluþjónninn mér að ef þeir hefðu sjálfir verið að mæla hefði ég sennilega sloppið þar sem þeir láta fólk yfirleitt í friði á undir 100 km/h.
Fyrir nokkrum árum var nefnilega farið í sértækar aðgerðir gegn ofsaakstri þar sem heimild var veitt til að gera ökutæki ökuníðinga upptæk, ásamt því sem sektir voru hækkaðar mikið. Inn í þetta frumvarp slæddist svo ákvæði þar sem ákveðið var að lækka vikmörk úr 10km/h í 5 km/h, sem þýðir að nú má sekta þig á 96 í stað 101 áður. Þetta hefur ekkert með ofsaakstur að gera og hefur pirrað mig alla tíð þar sem þetta veitir manni ekkert svigrúm til framúraksturs og það liggur við að cruise controllið ná ekki að halda sig inn þessara marka.
Maður vissi svosem vel að þetta væri bara auka skattheimta sem hefur ekkert með umferðaröryggi að gera. Það er gaman að sjá þessar upphæðir og þetta mun örugglega veita ríkisstjórninni innblástur hvað varðar aðferðir til að ná síðustu krónunum af ferðalöngum landsins.
|
Hálfur milljarður í sektir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.5.2010 | 05:46
Bjóða lækkun áður en gengið styrkist.
Maður veit svosem ekki hvað vakir fyrir þessum lánastofnunum þótt þetta líti ósköp vel út að bjóða lækkun á lánunum. Með því að bjóða yfirfærslu í íslenskar krónur er verið að taka gengisfactorinn úr lánunum. Á síðustu 6 mánuðum hefur gengið styrkst um 10%, þar af 5% síðustu 4 vikur. Lækkun lánanna nemur 10-20% og því spyr maður sig hvort verið sé að festa krónutöluna meðan að gengið er tiltölulega veikt. Ef lánin lækka vegna gengisstyrkingar tapa (hagnast minna) þau fyrirtæki sem voru raunverulega að lána í íslenskum krónum þótt lánin hétu erlend vegna þess að þau voru bundin við gengi erlendra gjaldmiðla.
Fjármálastofnanir hafa betra aðgengi að upplýsingum en almenningur og ef þeir sjá í kortunum frekari styrkingu krónunnar er þetta mjög sterkur leikur hjá þeim, en ekki fyrir þann sem nýtir sér þetta. Persónulega mundi ég býða og sjá, frekar en að stökkva á þetta. Gengið styrkist á hverjum degi þessa dagana.
|
Bílasala að glæðast |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2010 | 08:42
Drullusokkar að sunnan.
Það er alltaf sama minnimáttarkreddan í Akureyringunum, og reyndar í landsbyggðarfólkinu yfir höfuð, gagnvart Reykjavík. "Jakkafataklæddir menn úr Reykjavík" já, hvaðan annarstaðar frá gæti djöfullinn komið, holdi klæddur til að glepja menn.
Annars minnir þetta mig á atvik sem gerðist fyrir nokkrum árum síðan. Ég var staddur í smáþorpi á Vestfjörðum vegna ákveðinnar kunnáttu sem ég bjó yfir. Meðan ég dvaldi þarna gékk ég undir nafninu SASarinn, eða Sérfræðingur Að Sunnan. Mér var einnig tjáð að ef verkið gengi ekki að óskum yrði ég kallaður DASarinn, eða Drullusokkur Að Sunnan. Mér fannst þetta auðvitað bara fyndið og þó aðallega vegna þessarar tilvitnunar til Reykjavíkur. Þetta er þó ekki eina tilfellið sem ég hef lent í. Á einum stað á sunnanverðum Austfjörðum fékk ég þvílíkan fúkorðaflauminn um Reykjavík og allt sem þar var, að ég gat ekki haldið aftur af mér og svaraði mönnunum fullum hálsi. En sem betur fer eru það þó yfirleitt bara þessi litlu skot eins og hann Ásbjörn er með sem maður lendir í.
En manngreyið á auðvitað alla mína samúð. Þessir drullusokkar að sunnan voru augljóslega ekki starfi sínu vaxnir frekar en aðrir svokallaðir bankamenn.
|
Sögðu að lán til stofnfjárkaupa væru áhættulaus |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.4.2010 | 12:07
Áhugavert
|
Geimverur geta verið varhugaverðar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
16.4.2010 | 08:36
Ég sé eftir að hafa fermst.
Þetta var auðvitað alveg vitað mál, og glórulaust að innlima ólögráða börn í sértrúarsöfnuði. Það á að sjálfsögðu líka að banna skráningu barna í hverskyns trúarsöfnuði fyrir 18 ára aldur, banna kirjunni að stunda trúboð í leik- og grunnskólum og hætta að innheimta félagsgjöld fyrir allt draslið í gegnum skatta. Valdabáknið kirkjan er mikil tímaskekkja í nútíma samfélögum enda er hún á undanhaldi víðast hvar, sem betur fer. Í dag er vel innan við helmingur þjóðarinnar sem skilgreinir sig sem trúaða og því hljótum við að aðlaga okkur að því með því t.d. að hætta að dæla 5 milljörðum á ári í miðaldra kalla í grímubúningum (prestar) og þeirra gullslegnu hallir sem ganga svo þvert á boðskap trúarritsins að leitun er að annarri eins hræsni í mannlegum samfélögum.
Aðskilnað ríkis og kirkju STRAX!!
|
Sjá eftir fermingunni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
15.4.2010 | 07:37
Ánægður með Bertone
Ég er bara hæstánægður með þessi ummæli Bertones, í þeim skilningi þó að kaþólska kirkjan er að grafa eigin gröf og taka ómakið af okkur hinum sem lengi hafa fordæmt hana. Kaþólska kirkjan og kirkjur yfir höfuð eru algjör tímaskekkja í eins upplýstu þjóðfélagi og við teljum okkur búa í. Tilgangur kirkjunna er eingöngu að viðhalda sjálfteknum völdum, halda fólki í fáfræði og passa að peningastreymið stoppi ekki. Andlega hlið kirkjunnar er svo eingöngu tól sem notað er til að lokka sjúka og heimska með sér í lið og þarmeð viðhalda strúktúrnum.
Það er mín von að fleiri kardínálar taki til máls og tjái sig um barnaníðið því þeirra bronsaldarviðhorf opna augu fólks fyrir fávitaskapnum sem viðgengst í Páfagarði. Því meira sem þeir tjá sig því dýpri verður gröfin og því betri verður heimurinn.
|
Ummæli kardínála vekja reiði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
9.4.2010 | 13:14
Rétt taktík?
Það er gott að vita til þess að ölvunarakstur er á undanhaldi. Ég er þó ekki jafn viss um þessar nýjustu aðgerðir þ.e. að minnka mörkin og hækka sektir. Fyrir það fyrsta virðast engar tölur vera til um slysatíðni þeirra sem eru með upp í 0,5 prómill í blóðinu, og efast ég reyndar um að sá "hópur" valdi fleiri slysum en þeir sem ekki hafa smakkað það. Ég held að þarna sé frekar einhver pólitísk rétthugsun í gangi frekar en raunverulegt vandamál.
Hvað sektirnar varðar, að þá er nú stór hópur af þeim sem teknir eru ölvaðir, síbrotamenn. Sem kannski segir manni það að sektarupphæðin skiptir ekki máli því hún verður hvort eð er aldrei greidd. Þar að auki held ég að 500 þús. hafi ekkert mikið meiri fælingarmátt en 300 þús. Þegar menn eru stöðvaðir ítrekað ætti frekar að gera bílana upptæka. Þá eru tólin allavega tekin úr höndum þessara manna og erfiðara verður um vik að útvega sér ný. Einnig ætti að banna þeim að eignast bíl, og banna að þeim verði lánaðir bílar. Ef einhver lánar þeim bíl á hann á hættu á að missa hann verði síbrotamaðurinn stöðvaður.
Vona samt að þetta fari enn meira minnkandi, sama hvaða aðferðir menn svosem nota til að ná þeim árangri.
|
Veldur þú slysi í umferðinni um helgina? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


gjarnan
tilveran-i-esb
jevbmaack
prakkarinn
kt
mberg
maggadora
olijon
pallblondal
stjornuskodun
svartinaggur
thorthunder
valli57
