3.1.2010 | 23:17
Tillaga að lausn Icesave.
Ég tel að við eigum að bjóða Rússa velkomna hingað. Leyfa þeim að byggja nokkur kafbátalægi, nokkrar herstöðvar og ratsjárstöðvar gegn því að þeir sjái um allar þær skuldir sem óreiðumennirnir (stjórnmálamenn og útrásavíkingar) skildu eftir sig. Fyrir það fyrsta að þá hafa Rússar alltaf reynst okkur vel og því yrði ég ekkert smeykur við veru þeirra hérna. Í öðru lagi að þá yrðu öðrum Evrópuþjóðum og Ameríkuhreppi svo mikið um að ég tel fullvíst að þessum skuldum yrði sópað undir borð hið snarasta og við sennilega beðin afsökunar á þessu veseni öllu í kringum Iceslave. En til að púlla eitthvað svona þarf hugaða pólitíkusa........ eini sem mér dettur í hug væri Davíð Oddson, burt séð frá því hvaða skoðanir menn svosem hafa á honum.
Ekkert við frestinum að gera | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.12.2009 | 10:28
Minnisvarði um landráðamenn
Ég legg til að reistur verði minnisvarði með nöfnum þeirra þingmanna sem samþykktu þetta þegjandi og hljóðalaust. Ég segi þegjandi og hljóðalaust, því ekki hugnaðist þeim athuga dómstólaleiðina né að leyfa fólkinu sem þarf að borga þetta að hafa eitthvað um þetta að segja.
Þetta eru landráð í sinni skírustu mynd. Það skiptir engu máli þótt þessi upphæð sé aðeins 10% af heildarskuldunum, upphæðin, vextirnir og aðrir skilmálar sem settir voru einhliða af Bretum og Hollendingum vegna einstaklega óhæfrar samninganefndar okkar Íslendinga, eru algjörlega óásættanlegir.
Alþingi samþykkti Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.1.2010 kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.12.2009 | 17:04
Völvan smölvan
Þegar allt geysar í óeyrðum í landinu vegna sitjandi stjórnar, þarf þá mikla spádómsgáfu til að spá stjórnarslitum eða öðru því sem fram kemur í fréttinni? Nei ég bara spyr. Til að fá mig til að trúa þarf í það minnsta að spá einhverju sem ekki er í farvatninu.
Kona kemur fram með róttækar hugmyndir..... hvaða hugmyndir? hvaða kona? hvenær? hvers eðlis? Það eru alltaf að koma upp róttækar hugmyndir hjá báðum kynjum... þetta getur ekki annað en ræst
Spennandi tímar og miklar þjóðfélagsbreytingar...... ha.. það er sama hvað gerist að þá reynist hún sannspá með þetta.
Davíð Oddsson muni skríða út úr púbu sinni og koma á óvart með yfirlýsingum sínum í febrúar...... við skulum sjá til og þetta þarf þá að vera einhver opinber yfirlýsing en ekki eitthvað óundirbúið blaðaviðtal þar sem menn láta stundum hugann reika.
....snjóflóð falli fyrir vestan og annað fyrir norðan..... úff þetta getur ekki klikkað og rætist sennilega strax á nýjársdag og það mörgum sinnum.
Ég hef svosem ekki lesið völvuna fyrir næsta ár, en ég ætla rétt að vona að úrdrátturinn sem var í fréttinni sé ekki rjóminn af spádómunum. Annars er þetta svosem ekkert öðruvísi en aðrar spákéllingar, miðlar eða þessháttar hyski. Þetta er alltaf á svo víðum grundvelli að hlutirnir geta ekki annað en ræst.
Völvan spáir spennandi tímum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.12.2009 | 09:34
Hvar eru verðin?
Sprenging varð í flugeldaverði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 1.1.2010 kl. 10:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
26.12.2009 | 13:22
Kirkjusókn
50 guðsþjónustur í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.12.2009 | 23:06
Lestu biblíuna
Það besta fái að ráða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.12.2009 | 22:50
Aumingi
Ekki er vitað hvað konunni gekk til með því að berja páfa.
Var hún ekki bara að svara bænum þúsunda ef ekki milljóna manna. Hvern langar ekki til að berja barnaníðingsverndara. Hvernig stendur annars á því að hópur fullorðinna karlmanna getur ekki yfirbugað eina konu?
Kona barði páfa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.12.2009 | 00:20
Gott að þetta voru stofnanir en ekki heimili.
Brotist inn í tvær kirkjur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.12.2009 | 00:06
Mynd frá Baggalúti??
Vígði kapellu og klaustur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2009 | 10:56
smáís
Auðvitað hafa framleiðendur Fangavaktarinnar samúð mín þótt það rýri trúverðugleika fréttarinnar að blanda smáís inn í þetta. Smáís menn njóta engrar virðingar vegna þess að þeir berjast gegn almenningi með óréttlæti, yfirgangi og lygum hvar sem þeir geta. Ég hef t.d. sennilega keypt yfir 1000 tóma geisladiska til gagnageymslu í gegnum tíðina og alltaf þurft að borga til þeirra í leiðinni. Ef mig langar að uppfæra vínilplötusafnið og kaupa cd í staðinn að þá þarf ég að borga aftur til smáís þótt ég eigi efnið fyrir og er aðeins að breyta um geymsluform, og svona mætti áfram telja.
Svo kasta þeir fram einhverjum gögnum sem sýna minnkandi sölu geisladiska en "gleyma" að nefna þann fjölda sem selst í gegnum netið á t.d. itunes og tónlist.is, sennilega vegna þess að í heildina selst meira nú en áður.
Fangavaktinni stolið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |