Hin dulda útrás kirkjunnar

... og þá byrjar útrás kirkjunnar. Það gerist einmitt helst þegar þjóðin býr við kröpp kjör og auðveldara er að narra fólk í vitleysuna með loforðum sem rætast ekki fyrr en þú drepst. Ekki þekki ég nú uppruna þakkargjörðarhátíðarinnar, en eins og menn vita að þá eignuðu kristnir menn sér vetrarsólhvarfahátíðina sem nú kallast jól.

Séra Jón segir að við eigum að þakka fyrir og hugleiða hvernig við umgöngumst gjafir guðs. Ég sé þessi orð hans sem móðgun við vitsmuni almennings, að ætla einhverju ímynduðu fyrirbæri það sem við eigum, þegar búið er að marg sýna fram á þá náttúrulegu ferla sem áttu og eiga sér stað og hafa orsakað allt sem náttúran hefur upp á að bjóða.

Aðskilnað ríkis og kirkju STRAX, og látum þá sem upp á þetta vilja púkka borga það beint úr eigin vasa, án milligöngu ríkisins. Bönnum skráningu ungabarna í trúarsöfnuði, þetta er ákvörðun sem fólk getur tekið sjálft þegar það nær 18 ára aldri.


mbl.is Vill taka upp þakkargjörðardag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður bílstjóri

Mér skilst að amfetamín sé ekki vímugjafi sem slíkur heldi örvandi efni. Amfetamín var ekki bannað hér á landi fyrr en 1978 og hefur svipuð áhrif og (mikil) koffín neysla. Þannig að í versta falli hefði manngreyið verið vel vakandi og öll skynfæri í 5. gír, og þar með sennilega betur til þess fallinn að keyra en flestir aðrir. Hinsvegar er örugglega hægt að misnota þetta efni eins og hvert annað.
mbl.is Sýknaður vegna óafvitandi drykkju amfetamíns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rangt að sekta fyrirtækin.

Þetta er ómögulegt fyrirkomulag að sekta þau fyrirtæki sem brjóta svona af sér, nú eða þau sem stunda verðsamráð. Það hlítur öllum að vera ljóst að viðskiptavinir viðkomandi fyrirtækja koma til með að greiða reikninginn. Það væri nær að sekta þá einstaklinga sem taka þessar ákvarðanir. Það hefði miklu meiri fælingarmátt. Þetta er svipað og ef ég er tekinn fyrir of hraðan akstur á vinnubílnum að þá þarf ég að greiða sektina ekki fyrirtækið, þannig að mínum hag er best háttað með að keyra löglega því ég veit að ég þarf að borga sektina sjálfur.
mbl.is Sektaður fyrir að lesa póst starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við sama heygarðshornið

Þetta er nú kirkjunnar mönnum líkt. Í stað þess að úthrópa svona hegðanir og vera fremstir í fararbroddi á rannsóknum á slíkum brotum að þá er einhvernveginn allt gert til að þagga þetta sem mest niður. Gunnar kemst bara í betra djobb eftir það sem hann gerði og biskup neitar að tjá sig um málið. Þetta virðist vera eins hjá ríkiskirkjunni og þeirri kaþólsku, þar eru þessi mál, og flest reyndar töluvert verri, þögguð niður í krafti valdsins, og í stað þess að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að fyribyggja og fordæma þessa hluti að þá er þetta þaggað niður og menn bara settir í betri djobb.

Ef þessi stofnun vill fá vott af virðingu ætti hún að reka manninn úr starfi og setja þannig línurnar fyrir hina sem klæðast slíkum trúðabúningum. Kynferðisbrot gagnvart börnum er ansi viðloðandi þessa stétt manna og því þarf kirkjan að taka miklu fastar á málum en hún gerir. Það er sjálfgefið að það eiga hellingur af slíkum málum og verri eftir af poppa upp á yfirborðið og refsingin umfram almenna dómstóla er bara betra djobb fyrir vel unnin störf..... það eru allavega skilaboðin sem eru send út.


mbl.is Gunnar til Biskupsstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott fólk gerir slæma hluti

Það er eins og einn mætur maður sagði eitt sinn: Gott fólk gerir góða hluti og slæmt fólk slæma hluti, en til að gott fólk geri slæma hluti þarf trúarbrögð.

Þetta er alveg skelfilegt þegar fólk lætur trúarbrögð stjórna lífi sínu og annara.


mbl.is Báðu í stað þess að leita læknis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nægir peningar hjá kirkjunni.

Afhverju er, á þessum niðurskurðartímum, ekki hreyft við fjárveitingum til kirkjunnar? Þar fara 6000 milljónir í súginn á hverju ári. Fyrir þennan pening væri hægt að halda uppi bæði lögreglunni og HÍ. Mér er algjörlega fyrirmunað að skilja þessa forgangsröðun. Einn prestur kostar jafn mikið og 2,5 lögregluþjónar og það láglaunaprestur því margir þeirra eru með vel á aðra milljón í mánaðarlaun, og vinnustaðurinn er gullsleginn kastali.

Aðskiljum ríki og kirkju, og látum þá sem vilja halda þessu batteríi uppi borga það sjálf úr eigin vasa án milligöngu ríkisins. Notum svo peningana í eitthvað sem byggist ekki á ímyndun og er raunverulega góð fjárfesting, þ.e. menntun.


mbl.is Fjölgun fer illa með niðurskurði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver mun semja fyrir okkar hönd?

Ég hef svosem ekki náð að mynda mér afgerandi skoðun á því hvort við eigum að ganga í ESB eður ei, þó hallast ég að því að við ættum ekki að gera það. Það sem ég hef hinsvegar hvað mestar áhyggjur af er að ef til aðildarviðræðna kæmi að þá verða líklegast sendir einhverjir útbrunnir pólitíkusar til að sjá um samningagerðina. Þeir eiga eftir að fokka þessu upp alveg eins og með Iceslave samningana. Á meðan hinar þjóðirnar senda her lögfræðinga og sprenglærðra manna á samningasviðinu að þá sendum við Svavar Gests. Hver ætli mundi leiða viðræðurnar fyrir Íslands hönd í ESB málunum? Guðni Ágústs, nei ég bara spyr. Það er allt of mikill amatör háttur á þessu og það versta er að það á ekki eftir að batna.
mbl.is Kjúklingar myndu lækka um 70%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju

Afhverju skapaði guð þá svínið? Getur verið að fólk sé að lepja upp gömul ævintýri sem enga enga stoð í raunveruleikanum?
mbl.is Eina svínið laust úr sóttkví
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hahaha

hahahahahahaha.... það er ekki hægt annað en að hlægja að þessu.

Klæðum okkur öll upp í grímubúninga og skvettum vatni á hvort annað, förum svo út úi heim og segjum sjúkum og heimskum ævintýri....  getum við ekki sent ríkinu reikninginn líka.


mbl.is Kristniboða- og prestsvígsla í Dómkirkjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kirkjan í hnotskurn

Það tók þó ekki nema um 400 ár að viðurkenna þetta. Ætli þeir sjá líka eftir 400 ár frá deginum í dag að fordæming á smokkum og samkynhneigð sé kannski ekki rétt. En kirkjan má aldrei sýna vanmátt og dómgreindarleysi og því hefur fólki verið haldið í fáfræði þar sem kirkjan hefur komist með puttana. Það vekur reyndar furðu mína að þeir skuli ekki hafa gagnrýnt internetið og allar þær upplýsingar sem hægt er að nálgast þar, því upplýst samfélag er eitthvað sem ekki er kirkjunni í hag. Sjálfstæð hugsun er eitthvað sem kirkjan hefur barist gegn frá upphafi, og rökhugsun er það fyrsta sem þú þarft að kasta á glæ ef þú ert trúaður.


mbl.is Páfi vottar Galileó virðingu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Reputo

Höfundur

Reputo
Reputo
Fjölskyldufaðir með báða fætur á jörðinni. Hef óbeit á hverskyns guðatrú og er fréttafíkill
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Atheist

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband